Forever young.. I want to be forever young!
Ég sakna Danmerkur og hlakka til að fara þangað aftur.. þessir 4 mánuðir þarna úti voru þeir bestu í geiminum!! Og ég saknaði ykkar ákaflega lítið á meðan ég var þar.. satt best að segja! En samt alveg e-ð. Mér var alveg sama þótt ég væri þar "ein" (auðvitað var Ralla frænka þarna líka) og mér er alveg sama þótt ég verði ein þegar ég fer næst. I can manage ;)
Þessi köttur til dæmis var alveg ógeðslega fyndinn og elti mig og Svölu útum allt einn daginn.. við ákváðum að kalla hann Rána rándýr.. Ég hitti hann seinast í Mars, hress eins og fress!

Svo var það líka Sissel.. hún var ennþá hressari en Ráni. Sissel er hinn eini sanni Batman og getur drukkið alveg ógeðslega mikið líka. Mér finnst eiginlega allt sem hún gerir vera fyndið.. nema hvað hún reykir ógeðslega mikið. Það má ekki!!

Þarna eru svo líka e-ð af bestu stelpum sem ég hef á ævinni kynnst.. og það á örugglega engin eftir að toppa þær. Þær eru alveg mega svalar.. ;) (væmn)

Svo gerðum við svona mjúsikal.. söngleik! En þetta eru bara áhorfendurnir, gat ekki sýnt ykkur myndir af leikritinu sjálfu þar sem að allir eru svo halló í því að það er ekki einu sinni fyndið!! kannski of fyndið.. ég veit ekki.

Svo stálum við líka hurðum.. á fullu. Það var ekkert smá fyndið. Nema þegar það var gert við mig þegar ég var að reyna að sofa!!! (drepast)

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home