sunnudagur, apríl 09, 2006

King Julian

Vá það er dálítið merkilegt hvað það skiptir ÖLLU máli að þessi blessaða sól sé farin að láta sjá sig meira en 1-2 tíma á daginn!!
Stundum er ég alveg á leiðinni að sigra heiminn þegar ég sé hana.. verð ægilega glöð að sjá hana alltaf! Við erum svo miklar vinkonur við tvær.. svo sakna ég hennar svo ægilega á veturna að það fer allt í rúst. Fokk. En það skiptir ekki máli af því að það er að koma sumar!!!
Júní verður líka bara klikkað góður sko:

6. júní: heimurinn endar... (en við tökum ekki mark á því..)
7. júní: Stelpan verður tvítug!! jibbí kóla! Og Trölli bróðir það + 8 (28)
13. júní: Símtal lífsins (þið fáið bara að vita meira um það seinna í lífinu)
22. Júní: Legg af stað í leiðangur á Hróaskelduna! Það verður frábært!
Einhverntíma í júní: Stór-vinur minn hann Thomas sem ég kynntist úti í DK ætlar að búa og vinna í Reykjavík í sumar!!!
Annað: Svo verður hún Ralla frænka líka komin heim, Gray-C verður komin að vinna með mér í orkunni, sól og sumar, það verður hægt að fara í útilegur og grilla og margt fleira!! (frisbí og annað hressandi)

Svoleiðs að það lítur út fyrir að lífið sé bara að batna krakkar mínir!! Eða ég vona það allavega.. Mér líst e-ð svo vel á þetta sumar, það á held ég margt eftir að gerast. Ekki bara gott samt, það kemur alveg örugglega líka e-ð sem á eftir að rústa einhverju en akkurat núna þá er mér alveg sama.. Ég ætla bara að fara í fermingu og borða ógeðslega mikið og verða feit.

Tak og bless