Jæja krakkar...
Hvað segjum við þá?
Þó svo að það sé langt síðan ég bloggði um e-ð þá hefur nú ekki mikið gerst.. ég er bara e-ð að hringla í skólanum og skíta á mig að vanda, held að þýskukennaranum líki ekki vel við mig. æjæj aumingja hann....
Svo fékk ég skyndilega þá flugu í hausinn að lita hárið á mér rautt, Ralla frænka tróð reyndar þeirri flugi inní hausinn á mér. jáh og hún var að fá sér kött.. díses. Við skírðum hana í gær.. Múslí! og svo svona í tilefni dagsins datt hún ofan í bala fullann af sápuvatni.!! (semsagt kötturinn, ekki Rannveig)
Ég og Andri erum búin að sækja um vinnu í DK í gegnum Nordjobb.. það verður áhugavert sumar ef allt gengur í gegn..!! ohboy
Svo fer að koma að því að Jói, Dóri og Valli fari á vit ævintýranna, þó svo að ég hitti þá eiginlega aldrei á ég pottþétt eftir að sakna þeirra dáldið. Maður getur alltaf stólað á að hitta þá í bænum, bytturnar!
Jahh semsagt ekkert að frétta héðan nema bara skóli hangs og svo já eitt.. Greys!! Greys Anatomy... ég eeeellllsssskkkkaaaa Greys Anatomy. Eiginlega elska ég Dr. Burke mest! Hann er heitasti karlmaður veraldar..
Njótið:


4 Comments:
mmm.. þetta eru nú flest allt fallegt fólk í Greys og djöfull er ég sammála þér með GÓÐA ÞÆTTI!! gaagh
magga svava
Jæja átti að lána mér DESPO eða hvað hahaha ;) BTW mín orðin ógó dugleg í eldamennskunni :)
Á ekki að fara að henda þessum gaur úr þáttunum fyrir að hafa gargað eitthvað komment um kynhneigð eins af leikurunum?
Niðrandi komment átti að standa þarna ;)
Skrifa ummæli
<< Home