Benni bóðir besti og barnavinur mesti
Hann Benni var gull af manni og það var erfitt að kveðja hann í dag. Athöfnin í Langholtskirkju var falleg og gott að sjá hvað það komu margir, enda þekkti Beini held ég aðrahverja manneskju á íslandi. Ég er svo sár og leið þegar ég hugsa til þess að ég eigi aldrei eftir að sjá þennann dreng aftur, þetta gullfallega bros sem kom oftar en ekki á eftir einhverjum ógeðis bröndurum sem ég einfaldlega fattaði stundum ekki en hló samt, bara af því að þetta var Benni... það var ekki annað hægt! Það er sorglegt að vita það núna að þessi drengur sem skein svona skært hafi upplifað svona mikið myrkur inní sér.
En ég þakka bara fyrir þann tíma sem ég fékk með þessum yndislega plebba, ég sakna hans og veit að ég á eftir að hitta hann aftur seinna.
Benni ég vona að þér líði vel þar sem þú ert núna, að þú hafir fundið frið og ró.
Sjáiði bara hvað hann er gullfallegur!! Hvað er annað hægt en að dýrka þetta fés?
1 Comments:
Benni, Benni, Benni, hvað getur maður sagt? Hann var sko æðis, það fór ekki á milli mála. Sakna hans svooo. Athöfnin var yndisleg, ljúfsár léttleiki yfir öllu og þvílíkur styrkur sem systkini hans búa yfir, að geta treyst sér til að syngja, og þau gerðu það af algjörri snilld, þetta var svooo fallegt hjá þeim, nú syng ég "Dvel ég í draumahöll" fyrir Arnar áður en hann fer að sofa, fékk gæsahúð í kirkjunni þegar allir sungu með vögguvísunni. Það var gott að sjá þig þarna Tóta, gott að vita af þér þarna. Þurfum að fara að smala ólanum og Önnunni í kaffi eða eitthvað sterkara og rifja upp gamlar minningar, reyna að hressa okkur eitthvað við. Díll?
E.s.
Sorrý hvað þetta varð óvart langt hjá mér =S
Skrifa ummæli
<< Home