fimmtudagur, apríl 26, 2007

3D og Fiskvinnsla á Skagen

Góðir hálsar..


Ég sem hef gengið útum götur bæjarinns og tilkynnt öllum sem hafa eyru að ég sé að fara að vinna í DK í sumar hef skitið á mig!
Ég er nebbla ekkert að fara að gera það.. ég fékk vinnu í DK!! Bara á fokking Skagen... sem er svipað og Kópasker!! Vinnan sem ég fékk þar er í fiskvinnslu, tímakaup er reyndar 115dkk á tímann en tímarnir fara eftir magni á fiski sem streymir inní þessa blessuðu fiskefabrik.
Húsaleigan er 3000dkk á mánuði á meðan við værum að borga rúmar 1000dkk í köben.. Bömmer það!
Við semsagt sendum þeim bara fingurinn hoja! (samt ekkert í alvörunni)

En núna er planið semsagt þetta: Vinna vinna vinna hérna heima! Fara á hróaskeldu og svo bara í e-ð ferðalag um Evrópu, ef allt gengur að óskum!! (héðan í frá geri ég plön en segi engum frá þeim)

EN það er frábærast þessa dagana er Meet The Robinsons!!! Ég fór með e-m hálfvitum á hana í gær (í boði Rúnu) og þetta er sko án grín skemmtilegasta mynd í heiminum í dag!! HÚN ER Í 3D!!! Maður fær svona ógeðslega töff gleraugu ,ekkert pappadrasl með einu rauðu og einu grænu, ónei!! Alvöru sjitt sko.. Ég lúkka illa töff með þetta sett sko... úff ég hef ALDREI verið svona hamingjusöm eftir bíóferð áður... gleði gleði gleði, gleði líf mitt er!



Og svona í lokin: ALLIR ÞANGAÐ!



1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Hey Tengill :D Lasanja I know :) hehe... Ég kannski reyni að sjá þig allavega einu sinni á þessari skeldu múhahah...

mánudagur, 30 apríl, 2007  

Skrifa ummæli

<< Home