mánudagur, janúar 23, 2006

Heima

Já.. núna er ég semsagt komin heim.. búin að vera hérna í þrjár vikur held ég.. kom heim 3 janúar. Það er svosem skítsæmó að vera heima.. ég sakna danmerkur samt endalaust mikið og læt mig dreyma allann daginn um að vera þar.. fer aftur í júní.
Verð að gera það þar sem að maður er víst búin að fjárfesta í einum miða á Rolling Stones tónleika í Horsens 8. júní... þá verð ég orðin ægilega fullorðin. Tvítug og hávaði.. ætla mér svo auðvitað að trylla lýðinn á Roskilde Festival!! Við ætlum að hittast þar held ég allir krakkarnir úr skólanum!! Eða svona næstum því allir.. einhverjir eru víst fluttir til London og e-ð rugl þannig að þeir geta bara verið með okkur í anda.. bömmer fyrir þau.. hahahaha. lúðar..
Ákveð seinna hvort ég segi ykkur frá jólunum.. það fer eftir því hvort einhver lesi þetta.. nenni ekki að skrifa fyrir sjálfan mig eingöngu