Sorrý Jenns

Jæja jæja jæja...
Jenný er með áróður þannig að ég ákvað að gera e-ð skemmtilegt hér á þessa síðu og reyna að gera það reglulega. með ekkert svo löngum þurrkar tímabilum! Afsakið Hlé.
Lífið er svo óendanlega mikil snilld þessa dagana, ég vinn á Borgarspítalanum (Landspítala Háskólasjúkrahúss í Fossvogi) Ég vinn við að aðstoða sjúkraþjálfa og verð sennilega þarna út september, svo verð ég víst að finna mér aðra vinnu. Ég ætla jú að vera í fjarnámi í sumar þar sem að mér finnst ekki mjög spennandi að vera í skóla með 17 ára krökkum og fávitum. Bara sjálfri mér ;)
Það hefur nú samt ekki mikið gerst þó að lífið sé svona mikil snilld.. ég fór í landmanna laugar um seinustu helgi með Andra. Ralla frænka er skálavörður þar og við brunuðum í heimsókn til hennar í staðin fyrir að fara á villta útihátíð.. við erum ekkert svo villt, bara kúl!!
Það líf og fjör þar á bæ skal ég segja ykkur... Atli skálavörður í Hrafntinnuskeri kom í heimsókn til að fara í sturtu og Arnar Páll og Elva úr Hólaskjóli komu líka. Þau eru einum of hress stundum. Kynntu okkur fyrir dótturfyrirtæki Hólaskjóls; Eyrnaskjól! Það fyrirtæki selur eyrnatappa!!!!
Það var svona gaman:
Ralla er núna að labba laugarveginn og kemur í bæinn á morgun í eina nótt, þá verður sko líf og fjör.. Póker og kjólar... kannski!
Ég bið ykkur vel að lifa....... sjáum hversu öflug ég verð