föstudagur, maí 04, 2007

Well Who Knew?

Ég á vin sem heitir Ármann, hann er snillingur!

Í gær voru tónleikar á Nasa, minningartónleikarnir hans Benna til styrktar Félagi Ábyrgra Feðra. Þetta var fáránlega mikið stuð og gott fólk að spila. Ég lúðinn mikli kom auðvitað of seint og missti af nokkrum hljómsveitum, þar á meðal KK og Appolonia. Obbosí. EN ég sá snillingin hann Ármann uppá sviði með hljómsveitinni sinni... Ég er viss um að þessi hobbiti (ekki strumpur) eigi eftir að verða rokkstjarna! Ég vona það allavega, mig hefur alltaf langað til að þekkja rokkstjörnu ;)

Mesta snilldin af þessu öllu saman var að í stað að hafa einnar mínútu þögn þá voru 30 sek. læti til að minnast Benna... þá stóð maður bara og öskraði af öllum lífs og sálar kröftum þangað til allar æðar líkamans voru um það bil að springa.. er ekki frá því að ég hafi fengið massífa útrás og smá svima í kaupbætið.


Who Knew er snilldar hljómsveit og þeir eru svo færir tónleistarmenn þesir drengir: Ármann, Balli, Snorri, Jökull, Matti og Jón Valur. Tékkiði á þeim á mæspeis!! www.myspace.com/wellwhoknew