sunnudagur, apríl 23, 2006

Highway


My Highway
Hobotown9
Bankruptcity17
Wealthville48
Bog of Eternal Marriage117
Lake Love260
Please Drive Carefully
Username:

Where are you on the highway of life?

From Go-Quiz.com

mánudagur, apríl 17, 2006

Gelðikona í háska!!

Nei nei gleðilega páska!!!
Mikið ægilega er frábært að vera í páskafríi.. en samt ekki. Það er best í heimunum að fá að sofa út og slappa af og ekki fara í vinnunna á hverjum morgni en samt verð ég svo restless.. (ljót sletta..man ekki rétta orðið)! Og hlakka þessvegna bara smá til að fara aftur í vinnunna.. samt auðvitað ekki! Ekki ekki alls.. hah
En ég fór á IceAge um daginn!! Það var ekkert smá frábært.. við Andri og Rúna fórum í 4 bíó um daginn.. ég hef ekki gert það lengi! Ekkert smá fyndið að koma bara útúr bíóinu og það er bara sól og dagurinn er ekkert á leiðinni að vera búinn strax.. glæsilegt!
Annars átti ég nú að fara að hitta Hönnu í dag.. veit ekki hvað varð um hana..! hnuss

Fer þá bara í sund með Söru litlu og e-u fólki..

Adjö

laugardagur, apríl 15, 2006

Myndarlegt blogg


MYNDABLOGG...


Litla frænka mín er órtúlega fyndin.. meiraðaegja á klóinu líka!!

Svo fór ég uppí sumarbústað um daginn. Þar var hún Teresa! Ekkert smá sæl með lífið..



En hún þorði ekki í heita pottinn.. held að hún sé vatnshrædd.

En fjölskyldan mín var hress þannig að þetta var ferlega indæll dagur, sól og sumar (ef þú horfðir bara útum gluggann og fattaðir ekki hvað það var mikið rok)

mánudagur, apríl 10, 2006

Forever young.. I want to be forever young!

Ég sakna Danmerkur og hlakka til að fara þangað aftur.. þessir 4 mánuðir þarna úti voru þeir bestu í geiminum!! Og ég saknaði ykkar ákaflega lítið á meðan ég var þar.. satt best að segja! En samt alveg e-ð. Mér var alveg sama þótt ég væri þar "ein" (auðvitað var Ralla frænka þarna líka) og mér er alveg sama þótt ég verði ein þegar ég fer næst. I can manage ;)


Þessi köttur til dæmis var alveg ógeðslega fyndinn og elti mig og Svölu útum allt einn daginn.. við ákváðum að kalla hann Rána rándýr.. Ég hitti hann seinast í Mars, hress eins og fress!


Svo var það líka Sissel.. hún var ennþá hressari en Ráni. Sissel er hinn eini sanni Batman og getur drukkið alveg ógeðslega mikið líka. Mér finnst eiginlega allt sem hún gerir vera fyndið.. nema hvað hún reykir ógeðslega mikið. Það má ekki!!


Þarna eru svo líka e-ð af bestu stelpum sem ég hef á ævinni kynnst.. og það á örugglega engin eftir að toppa þær. Þær eru alveg mega svalar.. ;) (væmn)


Svo gerðum við svona mjúsikal.. söngleik! En þetta eru bara áhorfendurnir, gat ekki sýnt ykkur myndir af leikritinu sjálfu þar sem að allir eru svo halló í því að það er ekki einu sinni fyndið!! kannski of fyndið.. ég veit ekki.


Svo stálum við líka hurðum.. á fullu. Það var ekkert smá fyndið. Nema þegar það var gert við mig þegar ég var að reyna að sofa!!! (drepast)

sunnudagur, apríl 09, 2006

King Julian

Vá það er dálítið merkilegt hvað það skiptir ÖLLU máli að þessi blessaða sól sé farin að láta sjá sig meira en 1-2 tíma á daginn!!
Stundum er ég alveg á leiðinni að sigra heiminn þegar ég sé hana.. verð ægilega glöð að sjá hana alltaf! Við erum svo miklar vinkonur við tvær.. svo sakna ég hennar svo ægilega á veturna að það fer allt í rúst. Fokk. En það skiptir ekki máli af því að það er að koma sumar!!!
Júní verður líka bara klikkað góður sko:

6. júní: heimurinn endar... (en við tökum ekki mark á því..)
7. júní: Stelpan verður tvítug!! jibbí kóla! Og Trölli bróðir það + 8 (28)
13. júní: Símtal lífsins (þið fáið bara að vita meira um það seinna í lífinu)
22. Júní: Legg af stað í leiðangur á Hróaskelduna! Það verður frábært!
Einhverntíma í júní: Stór-vinur minn hann Thomas sem ég kynntist úti í DK ætlar að búa og vinna í Reykjavík í sumar!!!
Annað: Svo verður hún Ralla frænka líka komin heim, Gray-C verður komin að vinna með mér í orkunni, sól og sumar, það verður hægt að fara í útilegur og grilla og margt fleira!! (frisbí og annað hressandi)

Svoleiðs að það lítur út fyrir að lífið sé bara að batna krakkar mínir!! Eða ég vona það allavega.. Mér líst e-ð svo vel á þetta sumar, það á held ég margt eftir að gerast. Ekki bara gott samt, það kemur alveg örugglega líka e-ð sem á eftir að rústa einhverju en akkurat núna þá er mér alveg sama.. Ég ætla bara að fara í fermingu og borða ógeðslega mikið og verða feit.

Tak og bless