þriðjudagur, nóvember 28, 2006

Jesús er besti vinur barnanna!!

Jesss ég fékk góðar fréttir í dag!!


Ég þarf greinilega ekki að borga leigu fyrir desember... veiveivei! Kobbi Klobbi er búinn að finna e-n annann til að búa með sér.. (greyið sá) Þarna hafa sumir áunnið sér rétt til jólagjafa.. ekki margir en allavega sumir! Mig langar eiginlega að gefa þeim sem er að fara að búa með honum Klobba samúðargjöf.. en ég má víst ekki kvarta! Hildigunnur var löngu búin að segja mér að þetta væru mistök að flytja inn með honum.


Til lukku Hildigunnur mín.. þú færð kannski jólagjöf, þar sem þú gafst mér jú svo flotta gjöf!! Er ennþá í skýjunum.


Og þar sem ég sparaði mér þarna 40 þúsund kall er það nokkuð víst að ég hundskist til færeyja i febrúar!! Ralla frænka er e-ð að hugsa um að koma með.. þetta fer allt saman bara stórbatnandi!! mig langar líka til DK um næstu helgi... mér er boðið í partý!! hmh.. vildég væri milljóner


Yfir og út
Thorshavn


laugardagur, nóvember 18, 2006

Julebryg

Avúhú kæru vinir mínir!! Það fara alveg að koma jól! bara rétt rúmur mánuður í herlegheitin. Ég er ógeðslega spennt ef ég á að vera alveg hreinskilin, og fegin að vera heima hjá mér þessi jólin! Það var alveg huggó að vera hjá Grith í fyrra en það er samt enginn mamma ef þið fattið hvað eg á við..
Í kvöld er rejúníon kvöld í Brandbjerg fyrir þá sem voru með mér og önnina eftir að ég hætti. :( mig langar sjúkt að vera með.. þannig að ég Halla og Ralla frænka ákváðum bara að hittast í staðinn heima hjá Höllu og drekka jóla tuborg í staðin!!!Skál Fyrir Því!! (okkur)

mánudagur, nóvember 13, 2006

Meiri myndir...

Anna og Auður komu í heimsókn til mín rétt áður en ég kom heim! það var ógeðslega gaman og fyndið..:



ég og anna pósuðum villtar með hallarvörðunum!! (in a safe distance.. þeir eru með fokking byssur!!)




Auður fór samt miklu nær.. enda sagðan henni að fara frá!! hahaha





Svo hélt ég partý í köben einu sinni... það var stuuuuð!! Nema þegar Franks sletti jarðaberjum útum ALLT eldhús!!!
Þetta er Marie.. hún er fyndnust í heiminum!!! og finnst ógeðslega gaman að taka myndir af sjálfri sér ;)




Stine, Grith og smá af Önnu Hendrix.. sætar gellur!!






Svo á víst að reyna að fara til Færeyja í febrúar... hvernig líst okkur á það?